velkomin á rauðkublogg

Rauðkan

26.11.2007 20:20:59 / Helga

farvel farvel

Já halló halló...Helga er bara búin að ákveða að flytja núna yfir á nýja síðu. Ég er núna endanlega farin yfir um ;)Neeeee, ekki alveg. En ég er samt búin að taka þá ákvörðun að halda bara úti einni síðu. Ég er því núna endanlega farin yfir á 123.is síðuna mína.www.123.is/helgapalsþangað ætla ég að reyna að flytja sem mest af þessu skemmtilega dóti sem ég er með hér á þessari síðu.Farvel mínir kæru vinir og vandamenn :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 14:02:18 / Helga

jibbí, komin á netið aftur

jæja, ég veit að það er svoltið langt síðan síðast, en hey það verður að hafa það. ég nenni ekki akkúrat núna að segja ykkur frá því sem gerðist laugardag og sunnudag, en það kemur bara í næsta bloggi. ég ætlaði bara að láta ykkur vita að ég er búin að laga núna á hinni síðunni, þannig að aðeins eru myndaalbúmin sem eru læst...ég veit að sumum finnst það óþægilegt, en ég verð að gera þetta vegna öryggisástæðna. ég ætla ekkert að vera að flagga myndum af mér með byssur eða litlu systkynum mínu og fjölskyldunni án þess að ég viti nokkurn vegin hverjir sjái þær myndir.

jæja, ef þið viljið sjá myndirnar endilega hafið bara samband við mig...annað hvort í gegnum síðuna þar sem þið veljið bara að byðja um aðgang eða hafið samband við mig í e-maili

bangsakrutt@hotmail.com

ég svara alltaf eins fljótt og ég get! 


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 22:13:45 / Helga

jú, mán-fös - blogg vikunnar

Jæja, haldiði að það sé ekki kominn tími til að segja meira um ferðalagið mitt til Danmerkur. 

Mánudagur 24. september. Arna fór með mig í verslunarmiðstöð í Kolding, bær í svona 40-45 mín akstursfjarlægð. Við ætluðum fyrst að fara í göngugötuna í Vejle, sem er mun nær Vandel en hinn bærinn, en þegar við ætluðum að fara af stað tók mín sko eftir því að veskið hennar var horfið. Ég var ekki alveg sátt við þetta, en grunaði að það væri í bílnum sem við vorum í daginn áður í dýragarðinum...það vildi líka svo til að sá bíll var í Kolding, þar sem Martin var í vinnu. Arna hrigdi í manninn sinn og fann hann veskið mitt í bílnum. Þá ákváðum við að fara bara í verslunarmiðstöð þar í staðinn. Jæja, þetta er alveg heljarinnar stór verslunarmiðstöð, og það er bara fínn göngutúr að labba hana alla. Vá, við höfðum reyndar ekki nærri því nógan tíma til að skoða allt sem mig langaði að skoða, en það var allt í lagi, við ætluðum þarna aftur seinna í vikunni. Ég fór inn í H&M búðina þarna og fann mér 1 bol...það var eiginlega allt og sumt sem ég fann...svo voru fleiri skemmtilegar búðir þarna sem ég skoðaði, en ég held ég hafi ekki keypt mér neitt þar í þetta sinn. Þegar við vorum að verða komnar til Kolding föttuðum við að við höfðum gleymt skiptitöskunni hennar Caroline heima...úbbs...en það reddaðist reyndar. Ég held ég smiti vel frá mér gleymsku, því treystið mér þetta var ekki í síðasta skiptið sem eitthvað gleymdist. Jæja, þegar við héldum heim á leið ákváðum við að renna til Billund til að fara með úrið mitt til úrsmiðs, því að hnappurinn sem táknaði 1 á úrinu hafði losnað og stoppaði það af...jæja, úrið átti að vera tilbúið aftur á miðvikudaginn. Svo fórum við heim og við gleymdum okkur aðeins, því við áttum eftir að fara svo og ná í Camillu og Bryndísi frænku hennar í skólann og fara með þær í sund. Úff, við vorum svoltið í seinnikanntinum að ná í þær, fara heim til Bryndísar og ná í sessuna hennar og fara svo í sund. En við komum samt ekki of seint, svo þetta slapp allt saman mjög vel. Svo eftir sundið var haldið heim á leið. Við tókum svo bara kvöldið í að slappa af og hanga í tölvunum eða yfir sjónvarpinu.  

Þriðjudagur 25. september. Arna dró mig með sér og Caroline í barna sálmasöng í Nörup, bær hérna ekki langt frá, og guð ég vissi ekki hvað hún var að draga mig með sér í. En þegar þangað var komið var þetta bara tær snilld. Nokkrar mömmur með litlu börnin sín að singja og svona saman...hehe, þetta er fyrir 0-15 mánaða gömul börn og börnin voru öll voðalega sæt og fín og þau höfðu svo gaman af því að hlusta á mömmur sínar singja og láta eins og fífl þarna. Mér fannst bara gaman að fá að fylgjast með. Svo fengu börnin að leika sér með hristur og svona þegar þetta var búið. Jæja, svo héldum við heim á leið og fengum okkur að borða heima. Við bara slökuðum á heima áður en við fórum og sóttum stelpurnar í skólann og fórum svo til Billund að skoða litla sæta vikugamla hvolpa þar. Þeir voru svo fallegir...þetta voru labradorblendingar, litlir og svartir og svo sætir og vá, hvað ég dýrkaði þá :D þegar þetta var búið héldum við heim á leið og höfðum það bara gott um kvöldið. Arna gerði tilraun númer 2 til að fá mig til að setjast fyrir framan sjónvarpið til að horfa á einhverja góða mynd...(gerði það í gærkvöldi líka)...og í annað sinn var ég búin að sjá myndina, eða hafði engan áhuga á henni. hehe, ég er rosalegur gikkur á bíómyndir. 

Miðvikudagur 26. september. Jú hún ég komst að því að ég hafði gleymt flíspeysunni minni í sálmasöngnum í gær og mig vantaði hana...jæja, við verðum bara að ná í hana eða þá að Arna nái í hana fyrir mig og geymi hana fyrir mig fram í Janúar þá. En jæja við fórum og heimsóttum Möggu systur Örnu, þar sem hún var að dagmammast heima hjá sér...hún er nefnilega dagmamma og hjá henni voru nokkur börn, og svo tvíbbarnir hennar líka. Þær eru að fara að halda upp á 3 ára afmælið sitt á laugardaginn og mér er boðið líka. Gaman. Ég verð að koma með eitthvað handa þeim í Janúar svona síðbúna afmælisgjöf. Jæja, við fórum og sungum með börnunum og svona, þau voru voðalega hrifin af söngnum. Þau voru úti að leika sér í góða veðrinu hérna í Danmörku ;) svo var farið inn og borða hádegismat, sem samanstóð af litlum pitsum og pylsum í gerdeigi...rosalega sniðugt, og gott :). Á meðan börnin voru að borða komst Arna að því að hún var að fara á fund í skólanum hennar Camillu í kvöld...úbbs, því hún hafði haldið að það yrði daginn eftir. Jæja, við fórum svo þaðan og fórum í göngugötuna í Vejle. Þar vorum við í nokkuð langan tíma og ég flippaði inni í 2 búðum og keypti og keypti og keypti, og borgaði svo miklu minna fyrir það allt saman heldur en ég hefði gert heima á Íslandi...ég á núna alveg 3 buxur, 3 boli og 1 peysu til viðbótar við allt sem ég átti fyrir...híhí, og ég skal alveg viðurkenna að ég fann afmælisgjafir handa mínum dásamlegu systrum og smá gjöf handa Jóa bróa líka...ég hef samt verið að spá í hversu erfitt getur verið að finna þá eitthvað handa Veigari og Ragnari...þeir eru þá einir eftir...ég skoðaði heilan helling af dóti til að gefa þeim, en fann EKKERT!!! Jæja, hvað um það. Við fórum inn á veitingastað við götuna og fengum okkur að borða. Ég fékk mér voðalega vinsæl rif...úff, þau voru voðalega góð, en bara elduð upp úr svo voðalega sætri grillsósu að ég fékk yfir mig ógeð áður en ég náði að klára þau...puff, ég komst bara að því að ég á ekki að borða RIFJASTEIK!!! En hvað um það. Núna þurftum við að drífa okkur heim því að Camilla var að verða búin í skólanum og var að fara í leikfimi, og Martin ætlaði að fara með mig á skotæfingasvæði stutt frá Vandel, áður en hann færi með Örnu á fundinn. Svo við Arna héldum heim á leið og svo fór hún og náði í Camillu og kom svo aftur heim, því auðvitað hafði hún gleymt íþróttafötunum heima. Og svo var hún rokin aftur. Martin kemur svo og við förum á skotsvæðið...ég var pínu stessuð, því við ætluðum að skjóta á leirdúfur...það hafði ég aldrei gert áður. Martin tók nokkrar myndir og þær setti ég flestar inn á hina síðuna mína. www.123.is/helgapals endilega skoðið og segið mér hvað ykkur finnst ;). Svo hitti ég alveg heilar 2 dúfur í allt...af svona 24 sirka. Sumir myndu telja það lítið, en hey, þetta var í fyrsta skiptið sem ég skaut leirdúfur og ég var svona meira að læra inn á hvernig maður höndlar vopnið. Þetta var samt verulega gaman. Svo fórum við heim og borðuðum kvöldmat. Strax eftir matinn var komið að mér að sýna hæfni mína í að svæfa 8 mánaða barn og koma næstum 6 ára barni í rúmið...ég er auðvitað tær snillingur í samskiptum við börn og auðvitað sofnaði Caroline litla um leið og ég lagði hana niður og svo fór Camilla og háttaði og allt og fór að sofa um leið og ég sagði henni að gera það. Svo komu Arna og Martin heim og voða hissa á að allt hefði gengið vel. Jæja, hvað um það Arna reynir að fá mig til að horfa á enn eina myndina með sér og ekkert frekar en fyrri daginn, þá er ég búin að sjá myndina. 

Fimmtudagur 27. september. Jæja, þá var ég vakin óvænt og mér sagt að ég væri á leiðinni til Kolding aftur...við ætluðum að fara á morgun þangað og í legolandið í dag, en svo kom það upp að legolandið er lokað í dag svo við förum þangað á morgun. Jæja, ég drulla mér á fætur og fer í nýjar buxur og svona og við leggjum af stað og það er ekki hægt að segja mikið frá þessari ferð, annað en við eiddum eiginlega öllum deginum í verslunarmiðstöðinni og keyptum eitthvað dót og svona...og skoðuðum alveg heilan helling af búðum...ég verð að fara aftur þangað þegar ég kem næst...ég keypti mér jú 1 dvd mynd og svo aðra sem ég ætla að gefa...kostar skít á priki!!! Á heimleiðinni náðum við í flíspeysuna mína og var það eiginlega bara heppni, því við hittum á mann sem gat hleypt okkur inn til að ná í hana. Og þegar heim kom og eftir matinn reyndi Arna að gera enn eina bíómynda tilraunina og ekki gekk það nú betur því auðvitað hafði hún ég séð þá mynd..."As Good As It Gets" 

Föstudagur 28. september. Jæja, það hlaut að koma að því...ég er búin að vera hérna síðan á laugardaginn síðasta og þetta er í fyrsta skiptið sem það er kalt úti. Humm, það var samt spáð rigningu og svona í dag, og það rigndi svo sannarlega þegar ég vaknaði og fór á fætur. Við fengum okkur smá snarl í hádeginu og fórum svo af stað í Legoland. Þegar þar var komið var ég game í að fara í næstum allt...við byrjuðum á að fara í lest, svo í báta og svo fórum við í kálorminn og svo fórum við í turninn og tek það fram að ég er lofthrædd dauðanns en ég fann ekki fyrir vott af hræðslu í turninum. Svo fórum við í aðra lest og sú lest var svona 4 metra fyrir ofan jörðu og aftur fann ég samt ekki fyrir lofthræðslu. Svo fórum við í kolalest, í gegnum kolanámu og svona. Svo fórum við í kanóbátana og híhí, þar getur maður orðið blautur í gegn, þegar maður fer niður fossinn. Svo fórum við í víkingasiglingu og þar varð ég blaut...mýs sem sprauta á mann vatni og heljarinnar stór "foss" sem maður fer niður. Svo fórum við í sjóræningjahellinn og drekann (lítill rússíbani) og Arna ætlaði að fá mig til að prófa 2 hluti sem Camilla mátti ekki fara með mér í...ferlegan rússíbana og svo einhvers lags tæki sem maður prógrammerar sjálfur....það er sniðugt, því þú getur stillt hraðann og hvað tækið gerir sjálfur...ég fór ekki í rússíbanann, en ég fór í prógrammara tækið...ég komst að því að ég vil alveg fara í það aftur og prófa þá eitthvað annað...meiri hraða og kanski öðru vísi prógram hvað tækið gerir :D jæja, þegar þarna var við sögu komið var klukkan svo margt að verið var að fara að loka öllu, svo við héldum bara heim á leið og rétt svo mundum á leiðinni heim að við áttum enn eftir að ná í úrið mitt úr viðgerð. Jæja, við náðum þangað áður en það lokaði og ég borgaði þessar 70 kr (danskar) fyrir viðgerðina. Ansi sátt með það bara held ég. Jæja við komum við í búð og keyptum í matinn og ég keypti smá nammi gott og svona...híhí...og svo héldum við heim og Arna fór að elda og ég og Camilla lékum við Caroline á meðan. Svo kom matur og við borðuðum og svona og jú, svo eftir matinn og þegar búið var að ganga frá ætlaði Arna að hafa vaðið fyrir neðan sig og í staðin fyrir að spurja hvort ég vilji horfa með henni á mynd í sjónvarpinu, spyr hún hvort ég kannist við myndina sem er í kvöld og svona annað en alla vikuna kannast ég ekkert við myndina...svo ég samþykki að horfa á hana með henni. svo leggst ég niður í rúmið og byrja að skrifa þetta heljarinnar blogg, og varð nú að gera pásu á því meðan ég svo fór og horfði á myndina...svona þegar hún er líklegast hálfnuð gellur í kellu (Örnu) "tjah, ég held ég hafi nú séð þessa mynd áður...ég sá bara ekki byrjunina, en hef séð restina" puff, svona er þetta...ef ég hef ekki séð hana hefur hún séð hana...hvernig verðum við þá þegar ég verð komin hér og farin að búa hérna...ekki verður það svona öll kvöld? Hehe...kemur bara í ljós. Við horfðum nú samt á myndina og var hún bara fín. Svo kom ég aftur inn í rúm og er nú að klára bloggið...loksins. Jæja, svo núna er bara afmælisveisla á morgun og svo fer ég heim annað kvöld...þetta er svoltið skrítið.

Jæja, ætli ég verði svo ekki að segja frá heimferðinni líka í eins miklum díteilum og ferðinni út.

Kemur allt í ljós elskurnar ;)

Góða nótt!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.09.2007 22:21:14 / Helga

skýrsla helgarinnar (varúð - löng lesning)

Jæja, einn dagur í Danmörku og allt gott að frétta.

Flugið út gekk bara vel, var ágætlega á tíma og gott veður á leiðinni. Ég gaf mér ekki tíma til að skoða neitt almennilega fríhöfnina á Keflavíkurflugvelli, en ég sá margt sem væri gaman að geta skoðað betur, en það verð ég bara að gera næst þegar ég get. 

Jæja, ferðasaga.

Föstudagur 21. september. ég vinn frá 7 til 12.45 og fer þá beint heim í Grundagarðinn og fæ mér að borða. Nýbakað brauð og fínerí. Svo pakka ég niður öllu dótinu sem ég ætla með heim í Lautir. Svo legg ég barasta af stað frá Húsavík í Laugar. Ég tek það fram að þegar hér kemur við sögu á ég enn eftir að pakka öllu sem ég fer með út og ég er ekki enn búin að finna vegabréfið mitt eða neitt af því sem ég fer með mér út og heldur ekki búin að redda mér gistingu í Reykjavík. Þegar ég kem heim í Laugar er klukkan svona gróflega um 14. ég fer beina leið í símann og tala við móður mína sem ekki er heima til að fá lánaða ferðatösku hjá henni. fæ ég töskuna og fer beina leið að pakka niður...fer þá niður hver flíkin á fætur annari og engin þeirra brotin saman vegna þess að hún ég var að flýta sér nokkuð mikið. Tekst mér að pakka niður öllum fötunum sem ég tók bara til á staðnum og ekki nema hálftíma að. Þetta er persónulegt met í að pakka niður á sem stystum tíma og gleyma engu. Ég nokkuð ánægð með mig og fatta svo að ég á eftir að biðja um gistingu í Reykjavík, því ég ætlaði mér sko að fara með rútunni frá Akureyri klukkan 17 þennan sama dag og flugið út daginn eftir...úps, ég fer og hringi nokkuð mörg símtöl og fæ loks gistingu hjá þessu yndæla fólki honum föður hans Tomma (maðurinn hennar mömmu) og hans konu. Jú, núna er svo komið að því að koma sér til Akureyrar, því klukkan nálgast 15 og rútan fer 17. það tekur nánast 1 klst að keyra til Akureyrar, og ég á eftir að kveðja alla. Ég fer þangað sem mamma er og kveð hana, gleymi samt að kveðja litla bróður minn af einhverjum ástæðum, og bruna svo beint í Rauðá til að kveðja hann afa minn og Villa frænda og Guggu frænku. Jú og þaðan held ég svo af stað um 15.15. þegar ég er búin að keyra eina 6-7 kílómetra finnst mér eins og ég hafi gleymt gsm símanum mínum á tölvuborðinu heima á Laugum og stoppa og fer að leita að honum og þegar ég svo fann hann ekki snéri ég við og keyrði heim í Lauti. Þegar ég svo stoppa á planinu þar og fer að leita að húslyklunum mínum finn ég árans símann í pokanum mínu, sem ég hafði leitað í áður, og verð pínu gröm að sjálfsögðu. Jæja, ég svo legg af stað aftur og ég er komin til Akureyrar ekki löngu áður en rútan fór. Ég náði rútunni og gleymdi sko engu í bílnum sem ég ætlaði að hafa með mér. Heyrðu jú, rútan fer á áætlun og er ég komin til Reykjavíkur uppúr 23. þá hringi ég í fólkið sem ég fæ að gista hjá í Reykjavík og ætlar konan að koma og sækja mig. Ég bíð bara róleg og fer að taka farangurinn minn til og kemst mér til mikillar SKELFINGAR að ég hafði af einhverjum ástæðum gleymt tölvunni minni í rútunni þegar ég fór út við endastöðina og mér til enn meiri SKELFINGAR kemst ég að því að hún er farin af rútustöðinni. Ég fer og fæ neyðarnúmer hjá konu sem vinnur þarna og þegar ég er búin að hringja nokkur símtöl hvert í sitt númerið næ ég loks í rútubílstjórann sem segir mér hvar hann er og hvernig ég komist til hans til að nálgast tölvuna. Þegar svo Erna (konan sem sótti mig) kom hjálpaði hún mér að nálgast rútukarlinn og tölvuna mína, sem ég fékk í hendurnar stuttu seinna og það þökk sé yndælum rútubílstjóra sem mætti mér á miðri leið að staðnum sem hann var á. Úff, hvað ég var fegin þegar ég fékk tölvuna mína aftur. Jæja, núna förum við svo í Kópavoginn og setjumst niður og spjöllum í svoltinn tíma og svo förum við bara að sofa og svaf ég mjög vel yfir nóttina. En bara stuttu áður en ég fer að sofa geri ég mér grein fyrir því að einu gleymdi ég heima hjá mér...jú, hún ég gleymdi algerlega að taka með sér tannbursta. 

 

Laugardagur 22. september. ég vakna svona um 8 leitið við að það eru einhverjir kallar að nota körfulyftara við næstu blokk við hliðina og kemst ég að því að þetta eru bara menn sem eru að vinna við að mála blokkina, og það klukkar 8 að morgni til! Fuss, en jæja, ég lít á símann minn og tek þá eftir því að hún mamma mín hefur verið að senda mér sms stuttu áður. skoða ég smsið og þar er ég spurð að því hvort ég hafi ekki alveg örugglega munað eftir vegabréfinu mínu, og jújú auðvitað róa ég konuna niður og segi henni að það eina sem ég hafi gleymt hafi verið tannburstinn, og eftir nokkrar fleiri kveðjur og loforð um knús fer ég bara á fætur og kem mér vel fyrir frammi í eldhúsinu með krossgátublað og blýpennann minn. Ég dunda mér vel þarna og svo kemur Gunnar (pabbi hans Tomma stjúpa míns) fram og hellir sér upp á kaffi, guð hvað mér finnst alltaf gott að finna þessa dásamlegu lykt svona á morgnana, og klukkan var þá orðin 9.30 og ég hafði líka gleymt mér svona yfir krossgátunum. Jæja, ég fæ mér köku og mjólk og held áfram að ráða krossgátur og allan morguninn er ég svona út undan mér að fylgjast með málurunum við næstu blokk. Allt í einu er klukkan orðin 11 og Erna komin á fætur og ég fæ mér morgunkorn og allt í einu er klukkan orðin 11.30. úff, ég hringi í Imbu frænku mína, sem ég ætlaði að hitta í hádeginu og borða með henni. Við ákveðum að hún komi og sæki mig og þegar hún svo kemur er klukkan rúmlega 12 förum við á Nings og kaupum tilboð fyrir 3 því við ætluðum að borða með mömmu hennar, Lillu frænku, og fórum við svo til hennar (Lillu). Þegar við komum þangað er Bjössi frændi minn þar líka og auðvitað bjóðum við honum að borða með okkur. Við héldum auðvitað að maturinn myndi rétt svo duga fyrir okkur 4, en svo reyndist ekki, því við borðuðum okkur öll södd og samt varð trúlegast helmingurinn eftir af matnum. Allt í lagi, ég smakkaði líka herfilega vont laxasushi og ég hef endanlega komist að því að ég smakka ekkert framar sem kallast sushi eða inniheldur eitthvað hrátt DÝR!!! OOOJJJJJJ!!!!! Jæja, núna keyrir Imba mig á rútustöðina og komum við þar um 13.45 og næsta rúta fer á flugvöllinn eftir 15 mínútur. Ég kaupi mér miða og bíð róleg í smá stund með Imbu og spjalla við hana, áður en hún fylgir mér að rútunni og kveður mig. Ég fer í rútuna og svo leggjum við af stað út á flugvöll. Þegar þangað kemur finnst mér heldur kalt úti og er fegin að vera með flíspeysuna mína. Þetta er svona um 14.45 og fer ég beint og finn út hvar ég á að tékka mig inn, jú auðvitað þarf ég að labba eitthvert lengst út í rassgat áður en ég kem þar, en guði sé lof er bara einn maður þar að tékka sig inn og hann er eiginlega bara búinn að því þegar ég kem að borðinu. Þá þarf ég að grafa upp vegabréfið og allt það og koma töskunni minni á vigtina og ég fæ miðann minn og svo er ég barasta rokin upp til að fara í geggnum öryggishliðið og svona. Þar þarf ég að henda einni safafernu sem ég var, því miður, ekki búin að drekka úr. Jæja, kemst örugglega þar í gegn og labba svo af stað og skoða mig aðeins um. Flugið sagt vera á áætlun, svo ég fer að labba í áttina að hliðinu og hringi í mömmu og Svövu (hin mamman mín) og læt þær vita að ég sé að leggja af stað. Ég planta mér svo í sæti við hliðið og bíð svona sallaróleg þangað til við förum í vélina. Hún leggur af stað á réttum tíma og ég pínu stressuð þegar við förum í loftið, en svo bara kem ég mér vel fyrir og reyni að slaka á. Það reyndist frekar erfitt, vegna þess að í næstu röð fyrir framan var lítill strákur sem talaði svo hátt og var alltaf að gera eitthvað sem fór pínu í taugarnar á mér. Ég reyndar setti bara mp3 spilarann minn í eyrun og reyndi að sofna, ég sofnaði ekki en náði að losna við gargið í stráknum. Ferðin gekk vel, en mér fannst heldur mikill hávaði inni í vélinni alla leiðina, eitthvað í vélinni sjálfri. Þessi flugferð var eiginlega bara eins og að sitja í 3 klst í flugvél milli Akureyrar og Reykjavíkur. Ekki neitt sérstaklega gaman. Úff. Jæja, þegar á leiðarenda kom var ég frekar nervus yfir lendingunni, vegna þess að maður hafði séð nýlega myndband af því þegar flugvél sem lennti í Álaborg náði ekki að læsa öðru vænghjólinu og missti það undan sér. EKKI skemmtilegt að horfa á. Jæja, vélin lenti án vandræða og ég komst inn í flugstöðina í Billund og fór og beið eftir töskunni minni og það tók ekki langan tíma, því hún var frekar framarlega í röðinni. Ég hélt svo áfram og það passaði að næsti maður á undan mér framhjá tollinum var tekinn í svona handahófskennt tékk og ég komst fram án þess að vera stoppuð, ekki að ég hafi verið með eitthvað ólöglegt eða bannað. Ég bara komst fyrr út og þar biðu Arna og Camilla. Úff hvað ég var fegin að vera komin niður á land. Þegar við komum svo út úr flugstöðinni finnst mér ég ganga á vegg, 13 stiga hiti og æðislegt veður, og samt var Arna búin að vara mig við að það væri heitt úti. Jæja, þá var keyrt til Vandel og þegar við komum heim til þeirra í Vandel var klukkan svona um 21 að staðartíma, það er 19 að íslenskum tíma. Við fáum kvöldmat og alles og það er mikið spjallað og Caroline litla vaknar þegar við erum að fara að borða og virðist vera eitthvað að hrjá litla greyið. (tek það fram að hún er aðeins rétt rúmlega 8 mánaða og Camilla systir hennar er 5 að verða 6 ára í Nóvember.) jæja, við borðum þennan líka góða kjúkling í karrý. Jæja, þegar stelpurnar voru sofnaðar og allt komið í ró fórum við Arna bara að sofa fljótlega upp úr miðnætti og svaf ég verulega vel bara. 

 

Sunnudagur 23. september. ég vakna um svona 10 leitið (að staðartíma, um 8 leitið að íslenskum) og fæ morgunmat og alles. Horfi smá stund á barnatímann með Camillu og finnst alveg yndislega skondið að heyra "Totally Spies" tala á dönsku :D hehe, en hvað um það. Við fórum svo í Ljónagarðinn, það er stór dýragarður sem er í svona 30 mínútna akstri frá Vandel. Vá, þar sá ég bara helling af dýrum sem ég hef aðeins séð á myndum hingað til. Það var voðalega skrítið að horfa á fílana, flóðhest, Lemúra, simpansa, górillur, flamengo, nokkrar apategundir til viðbótar og pelikana og guð má vita hvað fleiri dýr með berum augum. Við vorum heillengi að labba og keyra og jú auðvitað sá ég ljón líka, og ég var bara í svona 50 cm fjarlægð frá einu, sem labbaði alveg upp við bílinn sem ég var í, frekar furðulegt. Ég tók helling af myndum og hef sett eitthvað af þeim inn á hina síðuna mína... www.123.is/helgapalsog endilega skoðið þær og sjáið bara sjálf hvaða dýr ég sá. En eitt af því fyndnasta sem ég sá var þegar górilla stökk á glervegg. Hehe, og dinkurinn sem heyrðist maður úff, og hún stóð bara upp aftur og endurtók þetta einum 2-3 sinnum til viðbótar. Það var heldur ekki slæmt að sjá flamengo fugla rífast, strúta ibba sig við fólki sem var að horfa á þá og lemúrana í sólbaði :D bara gaman!!! Jú og svo þegar við vorum búin að skoða allt sem okkur langaði að skoða fórum við heim á leið, en komum við hjá foreldrum Örnu á leiðinni. Það var rosalega gaman að hitta þau. Þar hitti ég einnig Möggu systur Örnu og manninn hennar og dætur þeirra. Þetta var bara gaman. Svo fórum við heim, en stoppuðum í lítilli búð á leiðinni til að kaupa eitthvað í kvöldmatinn. Þar keypti ég mér líka það eina sem ég gleymdi að taka með mér að heiman, TANNBURSTA!!! Jæja, svo komum við heim og ég lék við stelpurnar og Arna bjó til mat og svo borðuðum við og stelpurnar fóru að sofa og ég settist niður við tölvuna og Martin, maðurinn hennar Örnu, tengdi mig við netið. Þá fór ég á msn og ákvað að setja inn myndirnar frá því í dag. Ég tók mig til og plantaði myndunum í tölvuna og núna eru vonandi margar þeirra komnar inn á heimasíðuna mína. Endilega skoðið myndirnar bara.

Held ég segi þetta gott í dag, en ég á örugglega eftir að segja frá allri vikunni svipað og þessum dögum hér að framan. Afsakið ef þetta er heldur langt, en ég er bara svona þegar ég fæ mínar sjaldgæfu ritræpu ;) vona bara að þið hafið nennt að lesa þetta ALLT SAMAN

Takk fyrir mig í bili (tek fram að klukkan er að íslenskum tíma 22.10 þegar þessu er lokið en 00.10 hér í Danaveldi)

(tekur alltaf smá stund að lesa yfir þetta og svona...ég er svo mikill fullkomnunarsinni hvað stafsetningu varðar...eða ég vil alla vegana halda það sjálf ;) svo góða nótt núna)


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.08.2007 00:11:51 / Helga

skoðanir takk

Jæja, kellan er að hugsa um að prófa 123.is aðeins meira og er ég núna farin að blogga smávegis þar, er að hugsa um að gera þá síðu aðeins aðgengilegri en hún er núna og ég á enn eftir að setja þar inn allt þetta skemmtilega sem ég hef verið með hérna. Er að hugsa um að vera alveg flutt yfir á hina síðuna fyrir áramót. Þar er auðveldara að vera með myndir og stöff, og þar er svo margt sem er miklu skemmtilegra og betra að vinna með heldur en hér. Hér get ég t.d. ekki verið með almennilegar myndir og svona og ég verð að geta verið með myndir þegar ég er úti...ætla að taka mikið af myndum og setja inn á 123.is síðuna mína!!!

En hvað um það. Fyrir þá sem ekki vita, þá er 123.is síðan mín:

 

www.123.is/helgapals

 

endilega hafið samband við mig og ég gef ykkur upp lykilorðið...ég eiginlega verð að hafa allt læst þarna, vegna þess að ég vil ekki að hver sem er sé að skoða myndir af vinum mínum og vandamönnum...ég er ekkert hrifin af að hver sem er sé að skoða einkamyndirnar mínar, og Katrín mín, þú mátt alveg hafa mig sem fyrirmynd þar, ég er ekkert rosalega hrifin af því að hver sem er geti skoðað myndirnar af mér inni á síðunni þinni :) ekki illa meint elskan, en ég er yfirhöfuð ekki hrifin af öllum myndunum af mér á þeirri síðu.

En jæja, verð að fara núna...set líklegast nýjar myndir inn á morgun ef ég hef tíma...og ég held ég verði að breyta lykilorðinu vegna þess að það sem ég er með núna er svoltið langt og leiðinlegt...finn eitthvað gott og læt ykkur vita af því sem þegar hafið fengið lykilorðið!!

Góða nótt núna og endilega segið mér hvað ykkur finnst um þetta allt hjá mér!!!

Kærlig hilsen frå

Helga


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 15:55:11 / Helga

Danmörk...here I come!!!

Kellan var að enda við að bóka sér far til Danmerkur í viku frí!!!

ég er ekki alveg með sjálfri mér held ég núna upp á síðkastið...ég fer út 22 sept og verð í viku...hafa það gott og slaka á!!!

sé ykkur seinna 8):haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 21:07:23 / Helga

jahá!!!

Góðan dag, góðan dag

Ég er nú frekar slök í þessu bloggi miðað við að ég get verið á netinu allan sólahringinn ef út í það er farið. Jæja, ég ætla nú að reyna að setja eitthvað skemmtilegt hérna inn.

Jú, í augnablikinu er ég alein heima, allavegana fram á föstudag en þá koma mamma Tommi og Jói heim úr sumarbústaðnum. Ég verð að viðurkenna, að sama hversu mikið maður hlakkar til að flytja að heiman, þá langar mann svo sannarlega ekki til að búa einn. Það er svoltið leiðinlegt. Maður verður miklu latari svona almennt séð þegar maður er einn allan daginn og svona.

Ég meinaða, ég er líka að passa hundana og þá þarf maður að fara út að labba með allavegana 1x á dag og það tekur að jafnaði svona 1 klst á hverjum degi.

Í hnotskurn er dagurinn minn svona:

Ég vakna einhverntíman á bilinu 7.40 – 8.20 og set hundana út svona á bilinu 8 – 8.40, svo legg ég af stað í vinnuna um 8.45. Ég vinn 9 – 5 c.a. ( í fyrsta lagi um 4.30 ) og fer svo beint heim til að fara út með hundana, það tekur svona 1 klst, og svo þegar það er búið fer ég heim með þá og svo beint aftur upp í sparisjóðinn til að þrífa ( ég er að leysa af í þrifum út þess viku ) og það tekur svona 1 ½ - 2 klst...sem þýðir að ef ég byrja að þrífa um kl. 5 – 6 er ég aldrei búin fyrr en um 6.30 – 8. Þegar ég kem heim eftir þrifin þarf ég náttúrulega að setja hundana aftur út til að pissa ( í þetta sinn bara í band í garðinum) og auðvitað þarf ég að fá mér eitthvað að borða. Ég fer þá að elda mér eitthvað eða finna mér eitthvað að borða. Og þegar hér er komið er ég svo þreytt að ég sest eiginlega bara niður og fer í tölvuna eða horfi á sjónvarpið.

Já, svona reikna ég allavegana að þessi vika sé...ég meina í gær (mánud.) fékk ég mér pizza afganga í kvöldmat, ég var svo löt og svo horfði ég bara á sjónvarpið allt kvöldið og var næstum búin að gleyma mér og fór frekar seint að sofa. Úff, enda var ég frekar þreytt í vinnunni í dag. Og núna þegar ég kom heim eftir að hafa þrifið áðan ( ég kom heim rétt fyrir 7 ) setti ég hundana út í smá stund, setti í uppþvottavélina, léttsteikti 4 litlar fille steikur og setti þær inn í ofninn, þær fara að verða tilbúnar núna um 9 og svo ætla ég að setja smá af frönskum inn í ofninn þegar steikurnar eru komnar út. Svo að ég er ekki að fara að borða kvöldmat fyrr en uppúr 9...kanski ekki fyrr en svona um 9.30.

Svo reikna ég með að ég fari bara og horfi á bíómynd þegar ég er búin að borða...svo þegar hún er búin fer ég líklegast að sofa.

Jú, það er reyndar gaman að segja frá því að ég er að fara að skemmta mér á fimmtudagskvöldið með starfsfólkinu í sparisjóðnum, við erum að fara að gera allt mögulegt saman, og kanski eitthvað ómögulegt :D það kemur allt saman í ljós.

Ég reikna með að fara svo til pabba um helgina. Ég var að reikna það út áðan að þegar þessi vika er búin á ég aðeins eftir að vinna 2 vikur slétt í sparisjóðnum...það er frekar stuttur tími. Ach well, og í augnablikinu er ég að reyna að finna mér einhverja vinnu, er reyndar búin að vera að reyna það í mest allt sumar og ég er frekar efins um að ég finni eitthvað að gera...jæja, verð bara að reyna áfram.

Jæja, núna þarf ég að fara að gæta að matnum mínum, blogga seinna.

Ps.  Endilega kommenta og skrifa í gestó.


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.08.2007 02:21:02 / Helga

myndasíða

jæja, núna er hún Helga komin með aðra heimasíðu. ég ákvað að prófa að halda úti síðu á 123.is, en ákvað að takmarka hana mest við myndir...það er miklu betra að halda úti myndum þar heldur en hér, svo ég held bara áfram að blogga hér, og held mig við myndirnar á hinni.

hélt bara að fólk hefði gaman af því að skoða myndir...þessi síða er samt læst, svo endilega hafið samband við mig og ég læt ykkur hafa lykilorðið eins og skot!!!

www.123.is/helgapals

segið mér svo endilega skoðun ykkar á þessari hugmynd minni...ég er bara ennþá að prófa síðuna, svo ég á vonandi eftir að bæta inn á hana og laga og fleira skemmtilegt!!!

jæja, ég er að hugsa um að fara að sofa núna...klukkan orðin heldur margt...góða nótt!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 09:57:33 / Helga

"Lífið er yndislegt, sjáðu, það er rétt að byrja hér!"

Já góðan dag góðan dag góða fólk. Langt er nú liðið síðan ég síðast skrifaði eitthvað af viti hérna. Ætli best sé þá ekki að skella einhverju bulli hérna.

Ég er aðeins búin að fara í bíó einu sinni síðasta mánuðinn, og var það á sýningu númer 2 af Harry Potter and the order of the phenix (ekki dæma stafsetninguna, ef þið vitið um hvað ég er að tala. Hef aldrei verið góð í stafsetningu á ensku). Ég ætlaði að fara í bíó klukkan 6, en ég var hjá tannsa til klukkan 6 svo að ég náði ekki á fyrstu sýninguna. Tjah, ekki að það hefði verið eitthvað gaman. Salurin var pakkaður, svo að ég gat nánast hvergi fundið almennilegt sæti. Það er greinilegt að allir vilja sitja á sama staðnum í salnum. En hvað um það.

Jú ég verð líka að segja frá því að ég fór um daginn og hitti þær systur Örnu og Möggu. Og auðvitað hitti ég allar litlu elskurnar þeirra líka. Ég er farin að hlakka alveg ROSALEGA mikið til að fara til Örnu í Janúar og ég held að mig langi bara ennþá meira eftir að ég hitti hana og stelpurnar hennar. Svo verð ég að reyna að hitta Örnu betur núna áður en hún fer aftur til Danmerkur.

Síðan voru haldnir sumarleikar HSÞ hér á Laugum um daginn. Jói bróðir minn var að keppa þar í 2 greinum, boltakasti og langstökki, og gekk honum bara ágætlega. Hann var í 4 sæti í langstökkinu og var svo stoltur af því að hann gleymdi alveg hversu illa honum gekk í boltakastinu. Ég er alveg gasalega stolt af honum litla bróður mínum.

Jæja, hvað um það. Ég var á árlegri “ellismella” samkomu um helgina. Flestir allavegana vilja kalla þetta ellismellasamkomu. Ég var nefnilega á harmonikkuballi og þar hitti ég 15 ára tvíbura sem spila geggjað vel á harmonikkur og svo var þarna 17 ára harmonikkuleikari og svo var líka hellingur af litlum börnum og krökkum og svona. Mér leið bara sjálfri eins og ellismell þarna í samanburði við börnin. Hehe. Þetta var gaman samt. Fullt af fólki og svona, og jú ég hitti þarna hóp af Norðmönnum sem komu til að spila. Ekkert smá skemmtilegt fólk. Ég held að þau séu öll frá Osló, en samt þori ég ekki að fara með það. Þau voru verulega góð að spila, þetta var sko heil hljómsveit. Ég held að yngsti meðlimurinn hafi verið um 18 ára og sá elsti barasta eitthvað gamall. Þau tóku nokkur löng en skemmtileg lög á tónleikunum á laugardaginn og svo voru þau með lítið band um kvöldið að spila fyrir dansi. Þetta var geggjað gaman. Já og fyrir þá sem ekki vita hef ég verulega gaman af að dansa þessa gömlu góðu eins og þeir eru víst kallaðir. “gömlu dansarnir”.

Ég veit ekki alveg hvernig það byrjaði, en í fyrra dag (mánudag) um kvöldið kom kunningja kona mín við heima hjá mér og skildi þar eftir fyrir mig 10 fyrstu bækurnar um Ísfólkið. Jú og í gær eftir vinnu fór ég og sökkti mér svona líka vel ofan í fyrstu bókina. Ég held ég sé að falla í Ísfólkið. Þetta var hrein snilldar bók. Ég kláraði hana í gærkvöldi. Ég reikna með að ég taki eins og eina í dag þegar ég er búin í vinnunni. Ég veit ekki hvað það er við þessa fyrstu bók, en ég kolféll fyrir henni. Kannski engin furða, þar sem ég er alveg rosalegur bókafíkill. Það liggur við að ég geti lesið bækur á hvaða tungumáli sem er. Nánast allavegana. Ég veit allavegana að bókin má vera á ensku, dönsku, íslensku (auðvitað) og þýsku. Ég las fyrir nokkru síðan skemmtilega bók á dönsku, upphaflega vegna þess að mér leiddist en svo sökk ég bara svo mikið ofan í bókina að ég kláraði hana spennt að vita hvernig hún endaði. Hehe, ég er alveg rosaleg þegar bækur eru annars vegar.Jæja, ætli það sé ekki bara best að hætta núna. Þetta er að verða svo langt hjá mér. Auf Wiedesehn, far vel, good bye, bless bless.


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 18:43:34 / Helga

jamms og jæja.

ég hafði mig ekki í að skrifa blogg 17. júní. ég var bara hjá afa og þeim þá helgi og naut bara góða veðursins þar í sveitinni. 

Jæja...það er svo löngu kominn tími til að fara að skrifa eitthvað hérna inn.

Það er kannski ekki mikið sem hefur skeð hjá mér síðustu vikurnar, en eitthvað hlít ég að geta sagt þrátt fyrir það.

Best að byrja á að segja frá því að Arna og Magga eru að koma bara eftir rúmlega viku og ég er SVO farin að hlakka til að hitta þær. Þær eru að koma með litlu gellurnar sínar með sér. Ég hlakka ekkert smá til.

Ég fór fyrir ekki svo löngu síðan í bíó á myndina Pirates of the Caribbean – at Worlds end. Ég fór með tveimur vinkonum mínum og bróður annarrar þeirra. Síðan fórum við á Nings að prófa. Það er nýlega búið að opna staðinn á akureyri. Þetta var verulega gaman.

Síðan fór ég fyrir rúmlega viku með litla bróður minn á Skrekk hinn þriðja. Auðvitað þurfti það að vera með íslensku tali, svo hann gæti skilið hana, en ég er eiginlega að hugsa um að sjá hana aftur með ensku tali og kannski að fá mömmu til að fara með mér, en ég held að hún hefti bara gaman af að sjá hana. Shrek er nefnilega mjög mikil fjölskyldu mynd, og bara svo góð að við mamma kunnum 1 og 2 alveg utan að. Bróðir minn á þær sko báðar.

Síðan hef ég bara verið að vinna eins og ég veit ekki hvað. Alltaf að reyna að vera dugleg í vinnunni. Svo dugleg að ég lenti í blekslysi á föstudaginn síðasta. Ég var að fara að stimpla bréf (vinn í sparisjóð/pósthúsi) þegar ég tók eftir því að það vantaði púðann í stimpilinn. Þá hafði hann dottið á bak við borðið sem hann hafði verið á og ég varð öll kámuð út í bleki þegar ég lagaði hann. Ég rétt svo náði að losna við blekið af puttunum seinni part laugardagsins.

Úff...á maður svo að reyna að segja eitthvað frá helginni?

Móðurbróðir minn hélt upp á afmælið sitt á laugardagskvöldið og ég var að þjóna í veislunni. Hann var með alveg helling af fínum og flottum mat, sem við bárum á borð fyrir fólkið. Þetta voru c.a. 70 manns held ég sem komu í veisluna. Þetta var alveg hellings gaman. Þegar við (þjónarnir) vorum búin að þjóna til borðs fórum við Saga frænka (sem birtist óvænt heima hjá foreldrum sínum á föstudagskvöldið) að skipta um föt. Híhí, hún gaf mér geggggggjaðan kjól sem ég BTW elska ekkert smá. Svo var barasta farið að skemmta sér ;) híhí...og það ekkert smá. Saga, þú veist hvað ég meina ;) en hvað um það. Þetta var alveg dúndur gaman og svo hjálpaði ég fólkinu að ganga frá í gær (sunnudag). Ég var ekki komin heim fyrr en um 7 leitið.

Svo fór ég bara í vinnuna í morgun eins og venjulega og ég held að það hafi ekkert verið meira svona merkilegt að ég nenni að skrifa það hér inn.

Nei, það er allavegana ekkert prenthæft eftir að segja.

Luv u all og endilega haldið áfram að kvitta.


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 09:27:29 / Helga

alveg furðulegt!!!

þegar ég skrifa þetta hafa 3200 manns skoðað síðuna mína...eða réttara sagt hefur fólk skoðað síðuna mína 3200 sinnum. ætli ég sé ekki sjálf með einhvern hluta af þessu.

en hvað um það...núna er kominn mánudagur og maður aftur komin í vinnuna. lífið er dásamlegt í dag. fyrir utan að ég þarf að fara til tannlæknis...JAKK...en hvað um það. ég ætla bara að slaka á og horfa á friends eða simson fjölskylduna á meðan kallinn krukkar í kjaftinum á mér.

ég var hjá pabba mínum um helgina. hann átti afmæli á laugardaginn...og litla systir mín átti afmæli á föstudaginn...svo ég skellti mér til þeirra.

núna er barasta að reyna að finna eitthvað að gera um næstu helgi. ég veit að ég ætla að fara í kvennahlaupið á laugardaginn og ætli ég finni mér ekki eitthvað skemmtilegt að gera hinn sorglega 17. júní...3 ár síðan amma fór :cry:...pæla í því!!!

ætli ég reyni ekki að blogga eitthvað sérstakt þá.

ég mamma og Jói fórum með stjúpur og morgunfrú í blómadallinn á leiðinu hennar ömmu í gær. svo að vonandi verða falleg útsprungin blóm á leiðinu hennar í sumar.

verð að fara...bless í bili!!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 22:13:57 / Helga

helgarfrí

já, þetta er lífið. ég er búin að vera alltof lengi á netinu núna, ég ætla bara að láta vita af mér hérna. endilega skrifið eitthvað í gestabókina eða segið mér skoðanir ykkar við bloggin mín.

SAGA KAREN BJÖRNSDÓTTIR ertu alveg hætt að fara á netið?

KATRÍN LILJA KOLBEINSDÓTTIR þú ert ekkert lík sjálfri þér núna, alveg við það að vera hætt að kommenta hjá mér :cry:

jæja, hvað um það. ætli ég segi ykkur þá bara ekki hvernig dagurinn í gær var í grófum dráttum:

ég vaknaði og fór í vinnu. byrjaði kl. 9 og vann til 17 (eða 5 á mannamáli). ég kom við í Laugabæ á leiðinni heim og fór svo heim. þegar ég kem heim geng ég frá því sem ég keypti í Laugabæ og fer svo uppí herbergið mitt. ekki er það nú frásögum fært, nema fyrir það að ég tek upp á því að blása í blöðru sem ég átti þar. jú ég blæs og þegar ég er við það að hætta að blása springur þá ekki helvítið og það með mikklum hvelli og líka svona beint upp í vinstra augað á mér. ég náttúrulega gat ekki annað en grenjað heil ósköp, því þetta var verra en helvíti það var svo sárt. jæja, ég jafna mig nú hægt og smátt á þessu og svo um 7 leitið er ég eiginlega bara búin að jafna mig (1 1/2 klst seinna). þá tek ég upp á því að fara með vinkonu minni og börnunum hennar 2 í sund hér á Laugum. við fórum oní upp úr 8 og erum þar í líklega að verða 1 klst. þegar ég sat í pottinum og lék mér með bolta var eins og almættið hefði eitthvað á móti mér. ég komst allavegana að þeirri niðurstöðu þegar helvítis boltinn gaf mér einn á hann. ég hafði verið með boltann í kafi og missti hann upp undir hökuna á mér, svo ég beit aðeins í tunguna á mér. jú og ekki nóg með það, heldur þegar ég var að færa mig aðeins til í pottinum missi ég undan mér lappirnar og sekk á bóla kaf í miðjum pottinum. svo fór ég bara heim og háttaði mig og skreið upp í stól í stofunni og horfði á sjónvarpið fram yfir miðnætti. svo fór ég bara að sofa þegar ég var búin að hleypa voffakrílunum út að pissa.

svona var síðasti dagur maímánaðar ´2007 í lífi mínu.

jú, ég gleymdi algerlega að segja frá því að ég er alein heima þessa helgi og er að passa hundana fyrir foreldra mína. foreldrar mínir eru á austurlandinu og litil bróðir minn er vinnumaður hjá afa okkar um helgina. bara svona segja frá því á meðan ég man eftir því.

jæja, verð að fara núna, er búin að vera allt of lengi á netinu!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.05.2007 16:42:18 / Helga

ég er á lífi

hæhæ

ég vildi bara láta vita að ég sé á lífi hérna. það er bara allt brjálað að gera, ég náði öllum prófum og útskrifaðist með einar 152 einingar. ég er núna byrjuð að vinna í sparisjóðnum og auðvitað getur þetta verið strembið, ég byrjaði bara í gær. þetta er geggjað gaman bara og allir voða hjálplegir þegar maður er að byrja svona nýr.

ég verð að vinna í sparisjóðnum núna í sumar og svo kemur bara í ljós hvað ég geri eftir það. ég veit alla vegana að ég fer til Danmerkur í Janúar hvað sem hver segir, reyndar eru allir að segja mér að fara, þetta sé bara skemmtilegt fyrir mig og góð reynsla.

þú getur bókað það Arna mín að ég komi til þín og verði hjá þér í einhvern tíma, verðum bara að semja um það. ég ætla líka að hitta ykkur Möggu þegar þið komið í sumar, ekki nema nokkrar vikur í það.

jæja, hef ekki mikinn tíma núna, ætlaði bara að láta ykkur vita að ég sé á lífi og allt í sómanum hjá mér, já og til hamingju með afmælið í gær elsku Saga mín, ég kommentaði á síðuna þína í gær. verð að þjóta núna, er bara að enda vinnuna mína, stalst aðeins á netið svo þið hélduð nú ekki að ég væri farin yfir  :S

ég á líklega ekki eftir að koma með mörg löng blogg með einhverju viti í, en ég reyni að koma með eitt og eitt almennilegt blogg svona annaðs lagið. endilega spurjiði mig ef það er eitthvað sem ykkur langar að heyra um. ég skoða nefnilega e-mail og bloggsíðuna mína á hverjum degi, ég hef bara ekki mikinn tíma til að blogga eitthvað af viti.

verð að fara núna, bless í bili.


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 09:50:42 / Helga

ekkert djamm fyrr en eftir prófin!!!!

jæja, Saga frænka mín fær nei við öllum sínum spurningum, ég er ekki að skemmta mér þegar ég er að fara í mikilvægustu próf allrar skólagöngunnar. bara svona til að segja það. ég ætla ekkert að fara að djamma almennilega fyrr en ég er búin að ná öllum prófunum, og þá verður líka djammað feitt. hehe, það verður svo ágætt vegna þess að ég er að vinna svona fasta vinnu, byrja alltaf á sama tíma og er alltaf búin á sama tíma. en hvað um það.

já, ég er verulega að pæla í að fara til Danmerkur í Janúar. Saga frænka er í Noregi núna, hún segir að þetta sé bara gaman, sérstaklega þegar maður þekkir fólkið sem maður verður hjá fyrir. ég var hvort sem er búin að ætla mér að fara til Danmerkur og þetta er bara frábært tækifæri til þess að fara. ég hef nefnilega alltaf viljað fara til Danmerkur, og reyndar líka til Þýskalands, Englands, Noregs, Svíþjóðar, Færeyja, Grikklands, Krít (aftur), Ítalíu, Spán, Portúgal, Skotlands, Írlands, Frakklands, Austurríkis, Sviss, Hollands og Ástralíu.

úff, ég verð kanski bara að fá mér verulega góða vinnu til að hafa efni á því að ferðast þetta allt saman. jú og nokkuð mörg ár til að ferðast allt þetta, ef ég næ því þá. en hvað um það.

prófin eru bara að fara að skella á á morgun. allir eru að fara yfirum af stressi hérna í skólanum. ég verð samt að viðurkenna að ég er furðulega róleg yfir þessu öllu saman. jæja, ekki meira um prófin.

um leið og prófin eru búin byrjar stressið fyrir útskriftarathöfninni. ég veit svo ekkert hvað verður með útskrifarveislu, ég veit bara að ég er að fara að útskrifast 25. maí. jej, þá verð ég bara alveg búin með framhaldsskólann. það er alveg geggjað. ég verð að viðurkenna að ég er svo komin með upp fyrir kok af skólagöngu. ég er að pæla í að hafa þetta bara svona að vinna fram að áramótum og fara svo til Danmerkur í Janúar og vera þar í einhvern tíma. það kemur bara í ljós þá hvað ég verð lengi. híhí. jæja, ég ætla að hætta núna og skrifa fljótlega aftur. 


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 11:48:40 / Helga

humm...plan um komandi tíma.

Jæja, nú er allt að gerast. Það er fimmtudagurinn 10. maí í dag og bara á þriðjudaginn næsta byrja ég í prófunum. Ég reyndar tek smá þjófstart á þetta, Því ég er að fara í eitt mjög mikilvægt próf á morgun, svona upptökupróf sem ég vildi taka aftur. Mér gekk nefnilega svo illa í einu prófinu í mars, svo ég fæ að taka það aftur á morgun. Ég er nú aðeins farin að kvíða þessu öllu saman, því ég má ekki falla í einu einasta prófi. Ég er nú þegar búin að ná einum áfanganum sem ég er í, ég þurfti bara að skila ritgerð núna í þessari viku, og ég var svo dugleg og skilaði henni í gær. Ég er ekkert smá sátt við mig núna, vegna þess að ég náði að skila ritgerðinni án þess að vera á síðustu stundu að skrifa hana. Hehe, ég hef því miður gert allt of mikið af því að vera á síðustu stundu með ritgerðir og verkefni.En hvað um það. Prófin að byrja á þriðjudaginn og þá fer ég í efnafræðipróf, ég er að fara að taka upptökupróf úr fyrrihlutanum á morgun en fer svo í próf úr seinnihlutanum á þriðjudaginn. Svo er það náttúrulega landafræðin á fimmtudaginn. Svo fer ég í sálfræðiprófið á föstudaginn og svo á laugardaginn fer ég í uppeldisfræðina. Ég er eiginlega ekkert kvíðin fyrir landafræðinni, sálfræðinni og uppeldisfræðinni, en ég er að sálast úr stressi vegna efnafræðinnar. Úff.En best að snúa sér að einhverju öðru og skemmtilegra. Ég er að fara að gera svolítið skemmtilegt í efnafræðitímanum á eftir. Við erum ekki nema 4 í áfanganum, svo að þetta er bara skemmtilegra. Við erum að fara að gera alvöru tilraun, með saltvatn og svo vítissódalausn, en það er vítissódi (man ekki hvað hann heitir annað) sem maður leysir upp í vatni. Vítissódi er verulega ætandi efni, svo maður þarf að passa sig alveg rosalega vel. En hvað um það. Maður þarf að reykna eitthvað rosalegt, svo á maður að nota vítissódalausnina til að gera einhverja aðra tilraun, þar sem maður á að láta lausnina dropa rólega ofan í eitthvað annað efni, og svo breytist það efni. Þetta er eitthvað rosalega skemmtilegt víst, ég kemst að því á eftir...en ég verð nú að viðurkenna að ég er ekkert voðalega mikill efnafræðingur svo ég er svoltið kvíðin fyrir þessari tilraun. Púff.Hey, jú ég verð nú líka að segja að það er byrjaður suðburður hjá afa mínum á Rauðá. Kindurnar farnar að bera og litlu lömbin farin að skoppa og svona...það er gaman. En ég verð hjá afa í næstu viku og eitthvað fram yfir helgina (sem sagt helgina 20. maí). Svo er bara komið að því að útskrifast, en ég held að það eigi að vera 25. maí sem útskriftin verður. Ég er eiginlega farin að hlakka til þess að klára þetta af. Fá húfuna og allt það. Ég er svo fegin að ég er alveg að verða búin með skólann.Framtíðarplanið er að fara að vinna í sparisjóðnum hérna á Laugum í sumar. Ég verð þar líklega eitthvað fram í september, eða ég vona það alla vegana, og svo fer ég að gera eitthvað skemmtilegt fram að áramótum, og svo er ég virkilega að pæla í að fara til Danmerkur og taka boði Örnu og vera hjá henni sem Aupair. Ég ætla allavegana að stefna á það. Hvað svo verður veit enginn, og þá allra síst ég.Hey, vá þetta er orðið heldur langt hjá mér núna, ég kem bara fljótlega aftur og segi hvernig prófin ganga og svoleiðis.Kommenntið og kvittið í gestó!!! Svona fólk!!!

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
�?©g f�?¦ddist fyrir...
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 734542 dögum
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
tómstundir
Dagsetning
10. febrúar 2012
Klukkan